27.02.1939
Neðri deild: 8. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (72)

8. mál, námulög

*Frsm. (Vilmundur Jónsson):

Allshn. hefir athugað frv. og leggur til, að það verði samþ. að mestu óbreytt. Brtt. á þskj. 19 miða aðeins að því að breyta dálítið greinaröð og gera frv. þannig betur til þess fallið að fella breytingarnar inn í lögin. Ég þarf ekki að orðlengja um þetta, en vænti fyrir hönd n., að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem hún gerir við það.