09.12.1939
Efri deild: 80. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (830)
98. mál, verkamannabústaðir
*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Þetta mál er eitt af þeim l., sem ríkisstjórnin hefir gefið út sem bráðabirgðalög, og hefir nú gengið gegnum Nd. Allshn. þessarar deildar hefir athugað það og meiri hl. hennar komizt að þeirri niðurstöðu að leggja til að samþ. frv. óbreytt. Um þriðja nefndarmanninn, sem skrifaði undir nál. með fyrirvara, er mér ekki ljóst, hvaða afstöðu hann tekur, en hann mun gera grein fyrir því við umr. málsins.
Efni frv. er að fella niður 3. málsgr. 4. gr. l. um verkamannabústaði, en hún hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Nú er fleira en eitt byggingarfélag stofnað í kaupstað eða kauptúni, og veitir byggingarsjóður þá því félagi lán, sem fyrst hefir hafið byggingarstarfsemi, en ef hvorugt eða ekkert félaganna hefir byrjað slíka starfsemi, þá því félagi, er fyrr eða fyrst er stofnað.“
Önnur breyting er sú, að framan við 6. gr. bætist nýr töluliður, um að formaður byggingarfélagsstjórnar, sem skipuð skal 5 mönnum, sé skipaður af ráðherra, en hina skuli kjósa hlutbundinni kosningu af þeim félagsmönnum, sem fullnægja skilyrðum um, að árstekjur þeirra eða eignir séu ekki hærri en svo, að þeir séu hlutgengir til að fá íbúðir í verkamannabústöðunum.
Um tilefni þessara bráðabirgðalaga má lesa í grg. frv. Aðalástæðan er sú, að hér sé um mjög mikil opinber fjárframlög að ræða frá ríki og bæjum, svo að bæði sé rétt og skylt, að hið opinbera eigi formanninn í stjórn byggingarfélaganna. Ég held, að það skýri sig nokkuð sjálft, hvað hér er um að ræða, og vænti þess, að frv. nái samþykki deildarinnar.