15.03.1940
Neðri deild: 18. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)
41. mál, íþróttasjóður
*Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):
Fjhn. hefir haft þetta mál til athugunar, og n. hefir klofnað um málið. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. í aðaldráttum, en einn nm. áskilur sér rétt til að bera fram brtt. við þetta frv.
Ég hygg, að ekki þurfi að tala mikið um þetta. Öllum ber saman um, að það þurfi að hækka styrk til íþróttastarfsemi í landinu, bæði til íþróttaiðkana og einnig til þess að koma upp íþróttavöllum, skíðabrautum, o. s. frv. Á síðasta Alþ. var afgr. frv. um íþróttamál, og eins og skiljanlegt er, kemur þá til greina, hvernig eigi að afla tekna fyrir íþróttastarfsemina. Sú n., sem samdi frv. til íþróttal., hefir einnig fjallað um þetta frv., og meiri hl. n. telur, að þær leiðir, sem farið er fram á í frv., séu sennilega þær einu hugsanlegu til að ná tekjum í íþróttasjóðinn, því að þær tekjur, sem fást af áfengi og tóbaki, eru nokkuð öruggar, en hinar, sem fást af „tipping“ eða veðmálastarfsemi, eru mjög óvissar. En samt vilja íþróttamenn leggja út í það og sjá, hve miklu fé mætti safna með veðmálum við kappleika. En þær tekjur myndu ekki verða nærri eins miklar hér á landi eins og t. d. í Svíþjóð, því að það kemur varla til mála, að slík starfsemi yrði iðkuð að verulegu ráði hér á landi nema í Reykjavík.
Ég mun ekki ræða neitt um afstöðu annara nm. til þessa frv. fyrr en þeir hafa tekið til máls.