29.03.1940
Neðri deild: 25. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (1056)

41. mál, íþróttasjóður

Einar Olgeirsson:

Ég vil um leið og ég greiði atkv. um þetta mál, lýsa yfir, að brtt., sem hér liggur fyrir, fer fram á, að 50 þús. kr. séu veittar til íþróttasjóðs, þannig, að það takmarkar fjárframlagið aðeins niður á við, en ekki upp á við. Og nú stendur í till. fjvn., að greiða skuli til íþróttasjóðs 30 þús. kr. Hér er því ekki verið að minnka framlagið til íþróttasjóðs, og vegna þess segi ég já.