04.03.1940
Neðri deild: 9. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í B-deild Alþingistíðinda. (1130)

38. mál, lyfjafræðingaskóli Íslands

*Frsm. (Sveinbjörn Högnason):

Það hefir orðið nokkur misskilningur með þetta mál. Mun það frekar eiga heim í allshn. en í fjhn. Vegna þess að ég á sæti í báðum þessum n. hefir mér verið fengið frv. til athugunar, og hefi ég borið það undir fjhn.

Sem sagt, málið hefir af misskilningi verið flutt af n., og sé ég ekki annað en að leiðrétta megi það með því að vísa frv. nú til allshn., og sting ég upp á, að það verði gert.