05.03.1940
Efri deild: 10. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (1196)

42. mál, húsaleiga

*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Herra forseti! Frv. þetta er flutt af allshn. þessarar d. eftir tilmælum hæstv. félmrh. N. er yfirleitt þeirrar skoðunar, að mál eins og þetta eigi fullan rétt á sér, þótt einstakir nm. hafi ef til vill sérstöðu um einstök atriði. En það mun þá koma fram í brtt. ýmist frá einstökum nm. eða n. í heild.

Ég get að öðru leyti verið fáorður um þetta mál, þar sem hæstv. ráðh. er hér staddur og ég geri ráð fyrir, að hann geri því frekari skil.