01.04.1940
Efri deild: 26. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (1454)

77. mál, ríkisútgáfa námsbóka

Þorsteinn Þorsteinsson:

Það liggja hér fyrir við þetta frv. 2 brtt. Brtt. á þskj. 236, sem flutt er af mér einum, og brtt. á þskj. 282, sem flutt er af mér ásamt tveim öðrum. Ég vil taka það fram strax, að brtt. á þskj. 236 tek ég aftur, og var samkomulag um það milli mín og menntmn. Þeir sem viðstaddir voru af nm., gerðust svo meðflm. að till. á þskj. 282. Ég ætla ekki að orðlengja þetta, en vildi aðeins geta þess, hvernig á því stendur, að samkomulag varð um að koma brtt. á þskj. 282 á framfæri.