12.04.1940
Efri deild: 33. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)

65. mál, ríkisborgararéttur

*Frsm. (Magnús Gíslason):

Þegar það mál, sem hér er til umr., var til umr. í hv. Nd., hafði allshn. þeirrar d. það til athugunar, og sé ég, að hún hefir gert á því þá breyt. að bæta við einum manni, sem ætlazt er til, að fái íslenzkan ríkisborgararétt. En þar sem þetta er mikilsvert mál, þá óska ég, að hv. allshn. þessarar d. fái að athuga málið áður en það verður rætt frekar.