17.04.1940
Efri deild: 40. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (1601)
65. mál, ríkisborgararéttur
*Frsm. (Magnús Gíslason):
Allshn. hefir athugað þetta mál síðan það kom frá Nd. og gert eina brtt. við frv. um það, að nafn Oskars Söviks, norsks ríkisborgara, verði tekið út af frv. Síðan þessi brtt. var gerð, hefir n. fengið upplýsingar um það, að verið sé að gera tilraunir til að afla upplýsinga um það, sem n. telur skorta á um það, að hún geti mælt með því, að þessum manni verði veittur íslenzkur ríkisborgararéttur. Ég vil skjóta því til meðnm. minna, hvort þeir hafi nokkuð á móti því, að frestað sé að taka ákvörðun um þetta atriði þangað til slíkar upplýsingar liggja fyrir. Ef svo er ekki, þá óska ég fyrir hönd allshn., að málið verði tekið af dagskrá.