11.04.1940
Neðri deild: 33. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)

31. mál, tollskrá o. fl.

*Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég hefi engu sérstöku að svara fyrir hönd n. viðvíkjandi ræðu hv. þm., sem síðast talaði. Þetta skiptir ekki miklu máli fyrir tekjur ríkisins, en að öðru leyti má um þá till. deila, sem fram hefir komið um að fella algerlega niður toll á fiskumbúðum. Ég get sagt fyrir mitt leyti, að ég get greitt atkv. með slíkri till., en nefndarmenn hafa að öðru leyti óbundnar hendur um fylgi sitt við brtt. við þetta frv. Að samkomulag fékkst um till. n., olli því, að ég bar ekki sjálfur fram slíka brtt., sem nú hefir komið fram um að sleppa tolli af fiskumbúðum.