18.04.1940
Neðri deild: 43. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (1646)

31. mál, tollskrá o. fl.

*Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Brtt. 490,2 er um það, að fella burtu mismuninn, sem gerður hefir verið á söguðu efni og óunnu efni í kassa. En eftir að búið er að ákveða að endurgreiða allan toll af þessum hlutum, er þessi till. tilgangslaus. Hinar till. eru allar fluttar eftir tilmælum fjármálaráðuneytisins og tollstjóra, og hefi ég ekkert sérstakt um þær að segja.