23.04.1940
Neðri deild: 49. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (1715)

46. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Atvmrh. (Ólafur Thors):

Ég geri ráð fyrir því, að eftir næsta haust geti komið til mála, að Sjálfstfl. geri samning við Alþfl. um völd Alþýðusambandsins, en meðan Alþýðusamband Íslands er aðeins valdaklíka fámenns flokks, hefir Sjálfstfl. ekki ástæðu til að líta á það sem viðurkenndan aðila fyrir neytendur í landinu.