02.04.1940
Neðri deild: 28. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (1863)

16. mál, vegalög

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Ég sé ekki betur en tilganginum sé fullnægt með því að bera upp í einu lagi þær brtt., sem n. nú leggur til, að verði á frvgr., sem allar miðast við 2. gr. frv. um breyt. á vegal. frá 1933, og þar komi ekki neinn sérstakur liður til viðbótar fyrr en við 3. umr. En þá gæti liðunum fjölgað eftir því sem henta þætti.