23.04.1940
Efri deild: 48. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (1950)

16. mál, vegalög

Magnús Jónsson:

Ég verð að segja það, að þó að ég jafnvel hefði getað verið með svona brtt., þá hefir mér borizt það, að eitt af því undarlega við framferði hv. Nd. sé, að hún hafi þegar lokið störfum og að síðasta fundi hennar hafi verið slitið í dag, svo að hún er því ekki starfandi lengur. (Rödd af þingbekkjum: Málið þyrfti ekki til Nd., þó að brtt. yrði samþ., til þess að verða að l.). Í Sþ. þarf aukinn meiri hl. til þess að afgr. málið, og segi ég því nei.