19.04.1940
Neðri deild: 45. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í C-deild Alþingistíðinda. (2082)

26. mál, gengiskráning og ráðstafanir í því sambandi

Forseti (JörB):

Ég hefi fyrir löngu átt tal um þetta mál við hv. allshn. og látið í ljós ósk um, að hún afgr. það. Ég get ekki hermt nein loforð upp á nefndina. En ég vil vona, eins og ég hefi oft sagt, að nefndir kosti kapps um að afgreiða þau mál, sem þeim eru falin í hendur.