19.03.1940
Neðri deild: 21. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í C-deild Alþingistíðinda. (2120)
53. mál, eyðing svartbaks
*Pétur Ottesen:
Mér þykir einkennilegt, ef hv. þm. Barð. er í samkomulagshug, að hann skuli taka svo í mál mitt sem hann hefir gert. Það kann að vera, að slík afgreiðsla, sem hv. þm. talar um, geti samrýmzt þingsköpum, en annars er til forsetaúrskurður fyrir því, að ef búið er að fella till. um fjárveitingu, er ekki hægt að taka hana upp aftur í sömu mynd. En ef hv. þm. Barð. vill samkomulag í þessu máli, er skynsamlegast að taka málið af dagskrá nú og reyna að komast að samkomulagi um skipting kostnaðarins. Frá sjónarmiði þeirra manna, sem unna framgangi þessa máls, þyrfti slíkur frestur engan veginn að verða til þess að hnekkja framgangi þess. Það gæti komið fyrir fund á morgun í því formi, sem samkomulag næst um. Ég þykist hér vera með framrétta hönd til samkomulags, og ég held, að það sé ekki hyggilegt af hv. frsm. að slá á hana. Ég álít, að það sé ekki nema sanngjarnt, að dúntekjumenn beri einhvern hluta af þessum kostnaði, enda er hv. frsm. einnig þeirrar skoðunar, svo sem sjá má af ákvæðum frv. eins og það var upprunalega.