02.04.1940
Neðri deild: 28. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í B-deild Alþingistíðinda. (217)

87. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands

*Frsm. (Stefán Stefánsson):

Fjhn. hefir athugað þetta frv. og leggur shlj. til, að það verði samþ., þó með örlítilli breyt. á fyrri gr., þannig að í stað orðanna „1941 og 1942“ komi: 1941. N. þykir ekki ástæða til að leggja til, að þessi framlenging gildi um lengri tíma en eitt ár. m.a. vegna þeirra óvenjulegu tíma og óráðnu að því er framtíðina snertir. N. leggur því til við hv. þd., að hún samþ. frv. með þessari breyt.