05.04.1940
Neðri deild: 31. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í C-deild Alþingistíðinda. (2226)
105. mál, verðlagsuppbót á laun starfsmanna í verzlunum og skrifstofum o. fl.
Flm. (Thor Thors):
Með l. nr. 51 1940 ákvað Alþ. að hækka kaupgjald allra verkamanna, sjómanna og verksmiðjufólks, í vissu hlutfalli við aukningu dýrtíðarinnar, og nú liggur fyrir þinginu frv. til l. um verðlagsuppbót til embættismanna og starfsmanna þess opinbera, og er útlit fyrir., að það frv. nái fram að ganga. Með þessu hefir Alþ. viðurkennt, að þessum stéttum beri að fá launauppbót í hlutfalli við vaxandi dýrtið. En ennþá hefir Alþ. ekkert látið til sín taka launakjör þeirra fjölmennu stétta, sem vinna við verzlanir og í skrifstofum. Launakjör þessara stétta hafa verið í höndum Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, og því félagi hefir alltaf tekizt að ná samkomulagi um kaupgjaldið. Félaginu tókst um síðustu áramót að ná samkomulagi við fjölda atvinnurekenda um hækkað kaupgjald í réttu hlutfalli við það, sem Alþ. hafði ákveðið með l. nr. 51 1940, en einstöku atvinnurekendum er gefið undir fótinn með að vera utan þessara samtaka og komast þannig hjá því að gjalda réttmætar kjarabætur. verzlunarmannafélag Reykjavíkur nær ekki til allra starfsmanna í þessum stéttum og eingöngu til þeirra, sem vinna í Reykjavík. Ég fæ ekki séð nokkra sanngirni í því, að þetta starfsfólk sæti öðrum kjörum en aðrar launastéttir. Þetta frv. er sniðið eftir frv. um verðlagsuppbót til starfsmanna ríkisins, og vil ég með það fyrir augum mælast til þess, að þessu frv. verði vísað til fjhn., sem hefir einnig það mál til athugunar. Ég geri ráð fyrir, að það ætti að vera auðvelt fyrir hv. þm. að fylgja þessu máli fram, þar sem það hefir engin útgjöld í för með sér fyrir ríkissjóð.