18.04.1940
Sameinað þing: 20. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í D-deild Alþingistíðinda. (2520)
93. mál, innflutningur á byggingarefni o. fl.
*Frsm. (Magnús Jónsson):
Ég vil f. h. okkar flm. þakka hæstv. ráðh. fyrir góðar undirtektir undir þetta mál, og hefir það meira að segja um gagnsemi till. en þó að hún sé orðuð eins og nú eða breytt að því leyti.
Viðvíkjandi því, sem hv. 5. þm. Reykvíkinga sagði, er raunverulega enginn munur á brtt. og till. okkar upphaflega. Þar segir í 2. lið „að sjá svo um, að jafnan geti verið til nægilegt efni til viðhalds á húsum.“ Eins og till. er samkv. brtt„ er hún aðeins áskorun til ríkisstj. að láta þessar vörur vera til í landinu. En ég sakna þess, sem upphaflega var skýrt fram tekið í till., að frjáls sala verði á þessu efni. Þó sakna ég þessa atriðis ekki eins mikið vegna þess, að ríkisstj. þykir nauðsynlegt að setja reglur til þess að tryggja það, að efni, sem flutt er inn, verði aðeins notað til viðgerðar á gömlum húsum, en ekki til að reisa ný. Eins og ég hefi áður sagt, er allt undir því komið, hvernig undirtektir málið fær hjá ríkisstj. Svo lengi sem siglingar haldast til Englands og Ameríku, munum við geta fengið allar okkar nauðsynjar, ef við aðeins hefðum einhvern gjaldeyri. Það er þess vegna gjaldeyrisástandið, sem gerir okkar erfitt um allar framkvæmdir.