12.04.1940
Sameinað þing: 18. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í D-deild Alþingistíðinda. (2547)

80. mál, vegagerð milli Reykjavíkur og Suðurlandsundirlendisins

*Flm. (Eiríkur Einarsson):

Ég hefi ekkert að athuga við það, úr því að komin er fram till. um það, að málinu verði vísað til allshn., í trausti þess, að hún leggist ekki á það.

Hv. þm. sagði, að Alþ. gæti ekki gert ályktanir um þetta mál að órannsökuðu máli Ég er einmitt með till. mínni að biðja um rannsókn á þessu mikilvæga máli, en ekki að leggja fram neina rannsókn. Ég hefi sem sé ekkert á móti

því, að málið fari til n., en ég mælist til þess, að það komi þaðan aftur til þingsins.