22.04.1940
Sameinað þing: 21. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í D-deild Alþingistíðinda. (2550)
80. mál, vegagerð milli Reykjavíkur og Suðurlandsundirlendisins
*Eiríkur Einarsson:
Herra forseti ! Það er í almæli, að þinglok séu fyrir dyrum og ekki seinna vænna að spyrjast fyrir um mál, sem eru í nefndum. Allsnemma á þinginu bar ég fram till. til þál. um að fela ríkisstj. að endurskoða gerðar rannsóknir um vegarstæði milli Reykjavíkur og Suðurlandsláglendisins, með tilliti til þess að samgöngur haldist allar árstíðir og vegarlengd verði ekki meiri en ýtrasta nauðsyn krefur. Till. var vísað til allshn. samkv. kröfu frá nokkrum hv. þm., sem töldu málið svo stórt, að ekki mætti afgr. það án nefndar. Málið er stórt, en því meiri er nauðsynin á rannsókn, og hér var aðeins farið fram á rannsókn. Hlutverk n. er að greiða fyrir því, en ekki svæfa það. Mér þykir nauðsyn á, að till. komi fram, og vil biðja hæstv. forseta að beina því til hv. allshn., að hún leggi fram álit sitt. Geri hún það ekki, mun það ekki verða talið stafa af varúð, heldur einhverju leyndarmáli gamallar þingsamvizku.