02.04.1940
Sameinað þing: 11. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í D-deild Alþingistíðinda. (2568)

24. mál, innflutningur á heimilisnauðsynjum farmanna

Sigurður Kristjánsson:

Ég bar hér fram á öndverðu þingi till. til þál. um innflutning á heimilisnauðsynjum farmanna. Það mun vera um hálfur mánuður síðan þessari till. var vísað til allshn., en hún hefir ekki enn skilað áliti um málið. Vildi ég því mælast til, að hæstv. forseti minnti hana á.