12.03.1940
Sameinað þing: 5. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (30)

1. mál, fjárlög 1941

Forseti (HG):

Áður en umr. hefjast um málið, skal ég geta þess, að mér hafa borizt tilmæli frá formönnum allra þingfl. um það að hafa ekki útvarpsumr. við þessa almennu umr. um fjárl. Samkv. þingsköpum er ekki skylt að útvarpa þessum umr., en um það hefir myndazt venja, og vil ég þess vegna ekki breyta frá þessari venju án þess að fá samþykki þm. til þess. vil ég þess vegna biðja þá hv. þm., sem vilja fella niður útvarpsumræður að þessu sinni, að gera svo vei og rétta upp höndina.