17.04.1940
Sameinað þing: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í B-deild Alþingistíðinda. (339)

88. mál, fjáraukalög 1938

*Frsm. (Helgi Jónasson):

N. hefir farið yfir frv. og borið það saman við gildandi ríkisreikninga og ekkert fundið athugavert, en vill þó vekja athygli á því, að umframgreiðslur hafa farið alllangt fram úr áætlun, einkum að því er snertir starfsmannahald ríkisins. Vill n. aðeins benda á þetta, en leggur annars til, að frv. verði samþ. óbreytt.