23.04.1940
Neðri deild: 49. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

99. mál, lækkun lögbundinna gjalda

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Út af fyrirspurn hv. þm. Seyðf. get ég ekki sagt annað en það, að samkv. því, sem hann gerir grein fyrir, skilst mér það rétt vera, en ég hefi ekki athugað það sjálfur. Ég geri ráð fyrir, að um þetta geti orðið einhverskonar samkomulag milli ríkisstj. og tryggingarstofnunarinnar.