11.03.1940
Neðri deild: 14. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (453)

55. mál, síldartunnur

*Frsm. (Finnur Jónsson):

Þetta frv. er flutt af sjútvn. eftir ósk hæstv. atvmrh. (ÓTh). Í því felast aðeins örlitlar breyt. frá gildandi l., í þá átt hvað stærðina á tunnunum snertir. Sjútvn. hefir litið svo á, að rétt sé að lögleiða þessar breyt., þar sem það hefir komið í ljós, að á löggjöfinni um síldartunnur er einn galli, og þetta frv. er flutt hér á Alþ. til að bæta úr því. Bæði inniendir síldarframleiðendur og sjútvn. mæla með því, að þetta frv. verði samþ. Ég leyfi mér að mælast til, að þessu frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr.