15.03.1940
Neðri deild: 18. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í B-deild Alþingistíðinda. (477)

50. mál, bann gegn jarðraski

*Emil Jónsson:

Ég gat þess við 2. umr. þessa frv., að það væru til l, sem færu í mjög svipaða átt sem þetta frv., er hér liggur fyrir. l. um þetta eru nr. 28 frá 19. júní 1933, en þau gilda aðeins fyrir kaupstaði, kauptún og sjávarþorp. Það hefir orðið að samkomulagi milli mín og hv. flm. þessa frv. að gera þær breyt. á frv. að fella það inn í l., sem nú eru í gildi, svo að um þetta gildi í framtíðinni ein l., þó að l. verði færð út á víðara svið. Slík till. er Ekki nein veruleg efnisbreyt., heldur aðeins formsbreyt. til að samræma frv. við l., sem eru í gildi, eins og hv. þm. Mýr. minntist á.

Ég sé ekki ástæðu til að fara út í breyt., sem eru að lanmestu leyti formsbreyt.