15.03.1940
Sameinað þing: 7. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (50)

1. mál, fjárlög 1941

Páll Zóphóníasson:

með því að brotin var stefna fjvn. í fyrra strax á því þingi, og með því að hún hefir líka verið margbrotin á þessu þingi, og það af nefndinni sjálfri, og með því að ég mun við meðferð frv. um bráðabirgðabreyt. nokkurra l. koma með till. um auknar tekjur til þess að standast kostnað af þessari brú, segi ég já.