14.03.1940
Neðri deild: 17. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (535)
12. mál, tilraunir í þágu landbúnaðarins
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Landbn. hefir orðið ásátt um að mæla með því, að þetta frv. nái fram að ganga, en hefir gert við það nokkrar brtt.
Fyrsta brtt. n. er þá við 4. gr. frv., sem er um skipun tilraunaráðs fyrir búfjárrækt og jarðrækt, og séu fimm menn í hvoru. Í frv. er gert ráð fyrir því, að í búfjárræktarráði sitji tveir menn skipaðir af Búnaðarfélagi Íslands og tveir menn frá þeim skólabúum bændaskólanna, sem ætlazt er til, að hafi búfjárræktartilraunir með höndum. Nú hefir n. gert þær breyt., að það skuli aðeins vera maður frá öðru skólabúinu í þessu ráði, en í staðinn komi forstöðumaður búfjársjúkdómatilrauna við rannsóknarstofu háskólans. N. fannst eðlilegt, að þessi maður fengi þarna sæti, og úr því að taka þurfti einhvern manninn burt úr ráðinu til þess að koma þessum manni að, fannst n. heppilegast, að hann væri frá öðru skólabúinu.
Þá hefir n. gert smávægilegar brtt. við 10. gr. frv. um verkaskiptingu landbúnaðardeildanna. Það stendur í frv. í niðurlagi 10. gr.: „við stofnunina skal framvegis starfa sérfræðingur í hverri þessara fræðigreina, og skipar ráðh. í stöðurnar eftir því sem fé er veitt til þess.“ N. virtist óþarfi að kveða svona fast að orði, að það skyldi starfa sérfræðingur í hverri þessara fræðigreina, og áleit því rétt að orða þetta um á þann hátt, er stendur í brtt.: „Við stofnunina skulu framvegis starfa sérfræðingar í þessum fræðigreinum, og skipar ráðh. í stöðurnar, að fengnum till. viðkomandi tilraunaráðs, eftir því sem fé er veitt til þess í fjárlögum.“ N. álítur. að fá megi sama manninum tvö verkefni, sem hér er talað um.
N. hefir gert brtt. við 13. gr. frv., þar sem rætt er um jarðræktartilraunir og tilraunastöðvar. N. hefir flutt saman 13. og 18. gr. frv. og orðað þær nokkuð um jafnhliða; þó er í raun og veru ekki veruleg efnisbreyt. á þeim gerð. Í stað þess, að tekið er fram í þessum gr. í frv.. hvaða skilyrði þessum tilraunastöðvum eru sett til þess að fá styrk til tilraunastarfsemi sinnar, þá er ætlazt til þess hér samkv. til. n., að landbrh. geri samninga við eigendur stöðvanna. Brtt. n. er: , Tilraunastöðvarnar á Akureyri og Sámsstöðum skulu vera starfræktar sem aðaltilraunastöðvar í jarðrækt. Landbrh. skal gera samninga við eigendur stöðvanna, er tryggi það, að þær hagi starfi sínu eftir fyrirmælum tilraunaráðs, og að engar þær kvaðir verði á þær lagðar, er hamli, að tilraunastarfið nái þeim tilgangi, sem til er ætlazt. — Þegar fært þykir af fjárhagslegum ástæðum, skulu til viðbótar stofnsettar tvær aðrar tilraunastöðvar, önnur á Vesturlandi, hin á Austurlandi.“
4. brtt. n. er við 17. gr. frv., þar sem talað er um í frv., að landbrh. skuli eftir till. tilraunaráðs löggilda nokkur afbrigði af kartöflum og fræi annara nytjajurta, sem bezt hafa reynzt. (Forseti: Ég vil biðja hv. þm. að hafa ekki þennan ys í d. Ef menn hafa einhver áríðandi mál að flytja sín á milli, þá vil ég mælast til þess, að þeir geri það utan d. á meðan á fundum stendur. Þessi málfundafélagsskapur hér á Alþingi verður einhvern tíma að taka enda). Ég vil mjög þakka hæstv. forseta; ég var ekki farinn að heyra til sjálfs mín.
Það, sem átt er við þarna í frv. með að „verzla“ með útsæðiskartöfiur, er það, að ef hægt væri að hafa nægilegt útsæði af völdum kartöflutegundum á markaðinum, þá sé bannað að verzla með aðrar tegundir. Það, sem vakir fyrir n., er, að þetta gildi aðeins um verzlanir, en heimilt sé eftir sem áður að selja manna á milli. Það á ekki að fara að leggja neinar hömlur á viðskipti einstakra manna, þó að þessi l. komi í gildi viðvíkjandi sölu í verzlunum.
Þá er síðasta brtt. n. við 27. gr. frv., og þarf ég í raun og veru ekki að hafa nein orð um hana; við höfum orðað gr. um, þar sem í frv. stendur, að ríkissjóður kosti þær rannsóknir og tilraunir, sem lög þessi ákveða, en n. leggur til að bæta þarna inn í: „og koma þær til framkvæmda jafnóðum og fé er veitt til þess í fjárlögum“. N. lítur svo á, eins og ég held að ég hafi tekið fram við 1. umr., að það komi ekki til mála, að þessar tilraunir komi til framkvæmda allar í einu, heldur verði teknar stig af stigi, og verði hægt að gera það án þess að auka fjárframlögin verulega til þeirra frá því, sem verið hefir.
Þá hefi ég nefnt þessar brtt. landbn., en að öðru leyti mælir n. með því, að frv. verði afgr.