06.03.1940
Efri deild: 11. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (575)

32. mál, stríðsslysatrygging sjómanna

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég gerði grein fyrir þessu frv., þegar það lá fyrir síðasta þingi, og hefi ekki miklu við það að bæta. Ég vil þakka hv. sjútvn. fyrir það, að hún hefir greitt fyrir þessu máli, og vænti þess, að hv. d. taki því einnig vel og að það megi ganga greiðlega gegnum þingið. Ég tel svo ekki ástæðu til að gera frekari grein fyrir frv.; það skýrir sig sjálft og hvað í því felst.