26.03.1940
Neðri deild: 22. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (776)

61. mál, umferðarlög

*Frsm. (Gísli Sveinsson):

Herra forseti! Eins og ég hefi þegar getið, tel ég þau atriði, sem hér hafa komið til orða og athugasemda í sambandi við frv. um umferðarl., hafa þegar verið rædd í sambandi við næsta dagskrárlið á undan, frv. til bifreiðalaga. Mun ég því ekki lengja umr., en leyfa mér að æskja, að atkvgr. verði frestað þar til greidd verða atkv. um frv. til bifreiðal.