14.03.1940
Neðri deild: 17. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í B-deild Alþingistíðinda. (806)

60. mál, bifreiðalög

*Bjarni Ásgeirsson:

Ég ætla aðeins að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann fresti umr. um þetta mál. Því var útbýtt hér í hv. d. 11. þ. m., og til 1. umr. var það tekið með afbrigðum næsta dag, eða í fyrradag. Nú er þetta 2. umr., og ekki hefir verið hægt að athuga málið svo vel, að brtt. gætu komið fram. Ég vænti þess, að hæstv. forseti geymi frekar þetta mál heldur en önnur, sem eru á dagskránni.