26.03.1940
Neðri deild: 22. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í B-deild Alþingistíðinda. (821)
60. mál, bifreiðalög
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Hvað viðvíkur undirbúningi frv., sem hv. þm. Mýr. minntist á, þá er það að segja, að frv. er allvel undirbúið. Það var undirbúið af lögreglustjóranum í Reykjavík fyrir 2 árum og hefir síðan verið í athugun hjá vegamálastjóra og einum af hæstaréttardómurunum, sem hefir gengið frá frv. eftir langan undirbúning. Viðvíkjandi aths. um það, að í II. kafla séu atriði, sem ekki séu beinlínis í samræmi við fyrirsögnina, þá er það að segja, að þetta kemur fyrir í svo að segja öllum l., sem sett eru. Þegar samdar eru fyrirsagnir, þá er erfitt að koma því svo fyrir, að fyrirsögnin nái eingöngu yfir þau ákvæði, sem hún segir til um, nema í lokin séu, eins og stundum er gert, sett ýmisleg ákvæði. Þessi aths. er þess vegna hótfyndni, sem verður að finna betri rök fyrir en gert hefir verið hingað til.
Hvað snertir brtt. þeirra hv. þm. Mýr. og hv. 6. þm. Reykv., þá er það augljóst, að þeir hafa borið hana fram áður en þeir hafa kynnt sér málið til hlítar. Þótt við búum á eylandi, þá eru það engin rök fyrir því, að við þurfum endilega að halda í vinstri handar keyrsluna, þótt aðrar þjóðir séu allar að leggja hana niður. Hvað kostnaðinum viðvíkur, þá hefir það verið upplýst, hver hann muni verða. Vegamálastjóri hefir rannsakað það mál, og það munu verða um 30 þúsund krónur. Hv. flm. brtt. bar það fram sem rök, að það ætti að vera auðvelt fyrir þá, sem ferðuðust til útlanda, að setja sig inn í þær reglur, sem þar giltu, og sagði, að ef dæma mætti eftir þeirri reynslu, sem ég hefði sagt, að fengizt hefði þar, sem skipt hefði verið um akstursaðferð, þá ætti þetta að vera auðvelt. Nú er það vitanlegt, að þar, sem breyt. eru gerðar á þessu, þá er auðvitað hafður mikill viðbúnaður til að leiðbeina fólki, en hvað viðvíkur ferðamönnunum, þá er slysahættan alltaf fyrir hendi fyrir þá, sem koma frá löndum, sem hafa vinstri umferð, til landa, sem hafa hægri umferð. Og eitt getum við verið viss um, að ef breytingin kostar 30 þúsund krónur nú, þá verður sá kostnaður enn meiri, ef við drögum að gera breyt. Seinna getur þetta kostað stórfé, því að stóru vögnunum fjölgar stöðugt. Ég álít þess vegna, að við eigum ekki að hika við að breyta þessu núna.
Ég vildi satt að segja mælast til þess við flm. till., að þeir tækju hana aftur og færu ekki að halda uppi harðvítugum umr. um það, sem ég efast um, að sé sannfæring þeirra að athuguðu máli.