14.03.1940
Neðri deild: 17. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í B-deild Alþingistíðinda. (883)

23. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

*Pétur Ottesen:

Hv. frsm. sjútvn. hefir lýst hér yfir, að sjútvn. hafi gengið inn á þær breyt., sem ég ber hér fram við þetta frv., sem er um að lengja frestinn úr einu ári upp í tvö ár. Og þar sem n. hefir komizt að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa athugað málið, að þetta væru réttmætar óskir, þá þykir mér ekki ástæða til að fara frekar út í þetta mál, því að sjálfsögðu verður hv. d. að taka afstöðu n. og athugun í þessu máli gilda fyrir réttmæti till.