08.04.1940
Sameinað þing: 15. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

1. mál, fjárlög 1941

Eiríkur Einarsson:

Enda þótt mér þyki úthlutun á styrk til skálda og listamanna samkv. ákvörðunum menntamálaráðs mega að ýmsu leyti betur fara en nú hefir raun á orðið, mun ég samt greiða atkv. með því, að menntamálaráð hafi þá úthlutun með höndum, í trausti þess, að betur takist til næst. Ég tel, að sú úthlutun sé betur komin í höndum menntamálaráðs en þm., og vegna þess að ég vil, að ráðið leiðrétti það betur, sem það hefir nú gert, segi ég já.