15.02.1941
Sameinað þing: 1. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forsætisráðherra setur þingið

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Þessir þingmenn voru til þings komnir:

1. Árni Jónsson, 9. landsk. þm.

2. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

3. Bergur Jónsson, þm. Barð.

4. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

5. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

6. Bjarni Bjarnason, 2. þm. Árn.

7. Bjarni Snæbjörnsson, þm. Hafnf.

8. Brynjólfur Bjarnason, 1. landsk. þm.

9. Einar Árnason, 2. þm. Eyf.

10. Einar Olgeirsson, 4. þm. Reykv.

11. Eiríkur Einarsson, 8. landsk. þm.

12. Emil Jónsson, 6. landsk. þm.

13. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S.-M.

14. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.

15. Garðar Þorsteinsson, 7. landsk. þm.

16. Gísli Guðmundsson, þm. N.-Þ.

17. Gísli Sveinsson, þm. V.-Sk.

18. Haraldur Guðmundsson, þm. Seyðf. 19. Helgi Jónasson, 2. þm. Rang.

20. Hermann Jónasson, þm. Str.

21. Héðinn Valdimarsson, 3. þm. Reykv. 22. Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M.

23. Jakob Möller, 2. þm. Reykv.

24. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

25. Jóhann G. Möller, 6. þm. Reykv.

26. Jón Pálmason, þm. A.-Húnv.

27. Jónas Jónsson, þm. S.- Þ.

28. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

29. Magnús Gíslason, 11. landsk. þm.

30. Magnús Jónsson, 1. þm. Reykv.

31. Ólafur Thors, þm. G.-K.

32. Páll Hermannsson, 2. þm. N.-M.

33. Páll Zóphóníasson, 1. þm. N.- M.

34. Pálmi Hannesson, 1. þm. Skagf.

35. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

36. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.

37. Sigurður Kristjánsson, 5. þm. Reykv. 38. Sigurjón Á. Ólafsson, 2. landsk. þm.

39. Skúli Guðmundsson, þm. V.- Húnv. 40. Stefán Stefánsson, 3. landsk. þm.

41. Steingrímur Steinþórsson, 2. þm. Skagf.

42. Sveinbjörn Högnason, 1. þm. Rang.

43. Vilmundur Jónsson, þm. N.-Ísf.

44. Þorsteinn Briem, þm. Dal.

45. Þorsteinn Þorsteinsson, 5. landsk. þm.

Voru framantaldir þingmenn allir á fundi, nema 8. landsk. þm., þm. G.- K. og báðir þm. N.- M., sem boðað höfðu veikindaforföll. En ókomnir voru til þings:

1. Erlendur Þorsteinsson, 10. landsk. þm. 2. Ísleifur Högnason, 4. landsk. þm.

3. Jón Ívarsson, þm. A.-Sk.

4. Thor Thors, þm. Snæf.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, stóð upp forsætisráðherra, Hermann Jónasson, og las upp opið bréf ráðuneytis Íslands, handhafa konungsvalds, svo hljóðandi:

„Ráðuneyti Íslands, handhafi konungsvalds, Gerir kunnugt:

Að það samkvæmt stjórnarskrá konungsríkisins Íslands 18. maí 1920 hefur ákveðið, að Alþingi komi saman til reglulegs fundar laugardaginn 15. febrúar 1941.

Um leið og þetta er birt, er öllum þeim, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett, eftir að guðsþjónusta hefur farið fram í dómkirkjunni.

Gert í Reykjavík, 3. febrúar 1941. Hermann Jónasson

Eysteinn Jónsson Jakob Möller Ólafur Thors Stefán Jóh. Stefánsson Hermann Jónasson.

Opið bréf, er stefnir saman Alþingi til reglulegs fundar laugardaginn 15. febrúar 1941.“

Síðan las forsætisráðherra bréf ráðuneytis Íslands, handhafa konungsvalds, svo hljóðandi : „Ráðuneyti Íslands, handhafi konungsvalds, Gerir kunnugt :

Að það veitir hér með forsætisráðherra, Hermanni Jónassyni, umboð til þess í nafni ráðuneytisins að setja Alþingi, er koma á saman til reglulegs fundar laugardaginn 15. febrúar 1941.

Gert í Reykjavík, 3. febrúar 1941. Hermann Jónasson

Eysteinn Jónsson Jakob Möller Ólafur Thors Stefán Jóh. Stefánsson

Hermann Jónasson.

Bréf ráðuneytis Íslands, handhafa konungsvalds, um setningu Alþingis.“

Forsætisráðherra kvaddi nú elzta þingmanninn, Ingvar Pálmason, 2. þm. S.- M., til þess að stýra fundi, þar til er kosinn væri forseti sameinaðs þings.

Aldursforseti gekk þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn.