14.06.1941
Efri deild: 79. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í B-deild Alþingistíðinda. (1103)
167. mál, ríkisstjóri Íslands
Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Ég þakka hv. n. fyrir, að hún fellst á frv. Ég vil geta þess, að ríkisstj. hefur athugað þá till., sem kom fram í Nd., að kjósa ríkisstjórann 17. júní, og ég get lýst því yfir, að það ætti að vera hægt að kjósa hann þá. Það er eftir afgreiðsla eins máls, sem er að vísu mikið um deilt, og ríkisstj. vill mælast til þess við hv. þm., að því máli gæti orðið lokið hér án verulegra umr. Ef það mál verður afgreitt hér til 2. umr. í dag, og mánudagurinn notaður til 2. og 3. umr. þess, gerum við ráð fyrir, að ríkisstjórinn verði kosinn kl. l½ í Sþ. á þriðjudag. Þeirri athöfn á að útvarpa, og meðan á kosningunni stendur, skýrir þulur frá því, sem fram fer. Síðan flytur hinn kjörni ríkisstjóri ræðu í útvarpið frá Alþ., eftir að hafa undirritað eiðstaf. Þá verður fundi slitið, en boðaður fundur í Sþ. kl. 5 eða 6 samdægurs, og þá slítur ríkisstjóri Alþ. Til þess að þessi vinnubrögð geti orðið, þarf að flýta dýrtíðarmálinu hér í d.
Í sambandi við þetta mál vil ég jafnframt geta Þess, af því að það hefur verið spurt um það, fyrir hvaða verð Bessastaðir væru fáanlegir, að mér hefur í dag borizt bréf frá eiganda Bessastaða sem svar við bréfi mínu til hans. Bréfið hljóðar svo — með leyfi hæstv. forseta:
„Reykjavík, 13. júní 1941.
Hr. forsætisráðherra Hermann Jónasson, Reykjavík.
Í bréfi til mín, dags. 31. f. m., spyrjið þér mig, hvort ég vilji selja jörðina Bessastaði á Álftanesi sem bústað handa væntanlegum ríkisstjóra Íslands, ef Alþingi heimili ríkisstjórninni að kaupa jörðina í því skyni.
Með því að Alþingi hefur nú látið í ljós þann vilja sinn, að væntanlegum ríkisstjóra sé valinn bústaður á Bessastöðum, vil ég hér með gefa yður eftirfarandi svar:
Ég hafði eigi hugsað mér að selja Bessastaði fyrst um sinn, og þær fyrirætlanir, sem ég hafði um hagnýtingu jarðarinnar, hnigu eigi í þá átt að selja jörðina alla í einu lagi. En ég er sömu skoðunar og þeir menn, sem telja Bessastaði, sökum legu staðarins og náttúrufegurðar, vel fallna til þess að vera bústaður æðsta valdsmanns íslenzka ríkísins, og vil því gefa ríkinu kost á að fá jörðina til eignar í því skyni. Söluverð vil ég eigi nefna, vegna þess að ég geri ráð fyrir, að mat mitt á jörðinni mundi þykja nokkuð hátt, einkum þar sem ríkið væri kaupandi.
Þess vegna býð ég yður, fyrir hönd íslenzka ríkisins, að taka við jörðinni Bessastöðum, ásamt Lambhúsum og Skansi og 1/3 hluta Breiðabólsstaðaeyrar, sem gjöf með eftirfarandi skilyrðum.
1. Mér séu greiddar við afhendingu kr.67671.68, sem er sá kostnaður, sem ég hef haft af endurbótum á húsum og jarðræktarframkvæmdum o. þ. h., síðan ég keypti jörðina.
2. Að ríkið taki við þeim skuldbindingum, sem ég hef nú þegar tekizt á hendur í sambandi við byggingu og viðgerð á húsum og, vegna annarra framkvæmda á jörðinni. Um þessi atriði fylgir greinargerð í sérstöku bréfi.
3. Að ríkið kaupi áhöfn þá, sem nú er á jörðinni. Enn fremur verkfæri, áhöld og innanstokksmuni.
4. Með því að ég hef nú með allmiklum kostnaði undirbúið bæði tún og garða og að nú þegar er byrjað að slá túnið, fái ég sem svarar afrakstri þessa sumars af garðrækt og heyskap að mestu, að frádregnum kostnaði.
Þessa tvo síðustu liði met ég samtals til peninga á kr. 52328.32, og verður því upphæð sú, sem ber að greiða mér við afhendingu jarðarinnar, samtals kr. 120000.00.
Fyrir skuldum, sem á jörðinni hvíla, svo og vöxtum af þeim til þessa dags, mun ég afhenda viðtakanda sparisjóðsbók með upphæð, sem þarf til lúkningar skuldum, miðað við daginn í dag.
Afhending sé miðuð við daginn í dag. Viðtakandi greiði kaup starfsfólks og kostnað við það frá byrjun þessa mánaðar.
Að öðru leyti mun ég í sérstöku bréfi skýra ýmislegt viðvíkjandi afhendingunni.
Ég óska svo eftir, að þér tilkynnið mér hið fyrsta, hvort þessu boði verður tekið. Virðingarfyllst
Sigurður Jónasson.“
Ég hygg, að óhætt sé að fullyrða, að eftir því, sem lagt hefur verið í þessa eign með ýmsum stórframkvæmdum á síðasta ári, viðgerðum á húsum og jarðabótum, séu komnar í jörðina um 250 þús. kr. Jörðin er gefin eins og hún var, þegar hún var keypt, en greitt fyrir þær umbætur og húsbyggingar, sem til hafa komið síðan.
Þá hef ég í samráði við þann byggingarmeistara, sem hefur séð um þessar framkvæmdir, athugað, hvernig hægt sé að gera húsið úr garði, og við gerum ráð fyrir, að það sé mjög vel í lagt, að hægt verði að gera húsið svo sem bezt verður á kosið fyrir 70–80 þús. kr. Húsið er 21 metri á lengd, en 10½ á breidd, ein hæð og portbyggt. Niðri eru þrjú stór herbergi og 2 minni og eldhús. Á efri hæð eru 10 herbergi og 2 baðherbergi. Í húsinu eru því 15 herbergi og stofur og 2 baðherbergi. En því er ekki að leyna, að það mundi þurfa að reisa hús fyrir starfsfólkið. Þó er áætlað, að þessi eign með gjöfinni kosti ekki meira en það lægsta verð, sem Fríkirkjuvegur 11 fengist fyrir, áður en farið er að gera við þar. Það hefur verið upplýst, að hægt er að fá þá eign fyrir 250 til 300 þús. kr. Eftir að búið er að reisa hús á Bessastöðum fyrir starfslið ríkisstjóraris og gera þar allt úr garði á fullkomnasta hátt, stendur sú eign í líku verði og Fríkirkjuvegur 11. Ég vildi skýra hv. d. frá þessu nú.