22.04.1941
Neðri deild: 42. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (1201)

62. mál, Búnaðarbanki Íslands

Sigurður Kristjánsson:

Ég veitti því athygli, að vextir af þessum lánum eru taldir 6%.

Ég álít þessa vexti of háa. Í byggingar og landnámssjóði er þetta öðruvísi. Þar eru greiddir 5% vextir, og tel ég það fyllilega nóg. Ég hef minnzt á þetta við hv. frsm., og hann er mér sammála um, að vextirnir ættu að vera lægri. Og má því búast við brtt. um þetta atriði við 3. umr.