22.04.1941
Neðri deild: 42. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í B-deild Alþingistíðinda. (1541)
38. mál, vátryggingarfélag
Frsm. (Sigurður Kristjánsson) :
Mál þetta hefur sjútvn. haft til meðferðar, og hefur n. orðið sammála um að afgr. það eins og segir á þskj. 208 og leggur því til, að það verði samþ. með þeim breyt., sem þar eru gerðar.
Fyrri breyt. er við 6. gr. Þar segir: „Í stað „10%“ í niðurlagi fyrri málsgr. 23. gr. laganna kemur: 50%.“ N. leggur til, að þetta verði aðeins 2.5%. — Síðari breyt., er n. vildi gera, er viðvíkjandi stríðstryggingu. Samkv. l. eru ekki bótaskyld þau tjón, sem verða kynnu af stríðsástæðum.
Nú vilja sumir bátaeigendur tryggja báta á íslenzku fiskimiðunum. En á miðum okkar Íslendinga er orðin dálítil stríðshætta vegna tundurdufla. Slíkar tryggingar fást í Englandi, og er því ekki ósanngjarnt að leyfa félögum að fá hlutdeild í þessari tryggingu, og af því að miklar líkur eru til, ef fiskibátur ferst á tundurdufli, að þá spyrjist ekkert til hans. Þess vegna kemur það á hin almennu vátryggingarfélög að bæta þetta. Oftast er því hagnaður fyrir félagið að hafa trygginguna.
Hætta getur orðið af völdum loftárása fyrir skip, er liggja um síldveiðitímann inni við síldarverksmiðjurnar. Úti á miðunum verður hætta ekki mikil, eins og raun ber vitni, og eins og áður er sagt, ef bátar farast á tundurdufli, þá kemur það á almennu tryggingarfélögin, en ekki stríðstryggingarfélögin, að bæta það.
Við í n. vildum því, af því loftárásir á hafnir eru hugsanlegar, ekki gera þetta að skyldutryggingu, heldur aðeins setja sérstakt ákvæði um þetta og gera þátttöku frjálsa í þessum tryggingum. Að öðru leyti vill n. leggja til, að frv. verði samþ.