14.05.1941
Efri deild: 60. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (1776)
25. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
Ingvar Pálmason:
Ég skal engu bæta við það, sem hv. þm. Vestm. sagði um brtt. sína. En ég hef kynnt mér, hvernig sjútvn. Nd. leit á það, hversu skilja bæri ákvæði frv. Hún taldi, að það væri helmingur þeirra útsvara, er á væru lögð í bæjar- eða sveitarfélaginu, sem gjald þetta mætti nema. Þessi skilningur þótti þar sjálfsagður, án þess að hann kæmi nokkurn tíma beint til tals. Þannig lítur og meiri hl. sjútvn. þessarar d. á málið og getur því ekki fallizt á, að þörf sé á brtt. á þskj. 504. En brtt. á þskj. 476, sem meiri hl. hefur flutt, er til þess að taka af tvímælin í þessu efni. Hvort sem bein þörf er á þeirri breyt. eða ekki, hygg ég, að ekkert sé móti því að gera hana.