16.05.1941
Efri deild: 62. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)
127. mál, Vatnsleysa í Viðvíkursveit
Frsm. (Ingvar Pálmason.):
Ég hef fátt eitt að segja fyrir hönd allshn, um þetta frv. Eins og sést á nál., fellst n. á þær ástæður, sem færðar eru fyrir frv. í grg. þess og í bréfi biskups, sem fylgir sem fylgiskjal, og getur n. ekki séð annað en að allt mæli með því að samþ. þetta frv.