06.05.1941
Neðri deild: 52. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (1906)
79. mál, landnám ríkisins
Ísleifur Högnason:
Ástæðan til þess, að við flytjum brtt. á þskj. 322, er sú, að við álítum ekki rétt að gefa ríkisstj. undir fótinn með að taka atvinnubótafé og verja því eins og lagt er til í frv. Þó að ekki þurfi að grípa til þessa fjár nú, álítum við ekki rétt að hafa heimild í 1. til að taka þetta fé.
Ég sé í brtt. landbn. við sitt eigið frv., að þær þrengja ákvæði frv. um það, hvar megi verja þessu fé. í staðinn fyrir „við sjó og í sveitum“ vill n. setja „við þorp og kaupstaði í sveitum“. Ég hef nú ekki aðgætt, hvað mörg þorp geta heitið sveitaþorp, og mér skilst, að þorp megi ekki standa við sjó til að verða þessara gæða aðnjótandi. Ef ekki má verja fénu til sjávar og sveita, skil ég ekki meiningu hv. n.
Til þess að bæta upp það, sem tapast við að fella atvinnubótaféð úr þessu frv., leggjum við til, að framlag ríkissjóðs hækki úr 250 þús. og verði 500 þús. kr., enda væri það ólíkt betri og tryggari tekjustofn en hitt. Það yrði óvisst og erfitt að gera fastar áætlanir eftir atvinnubótafénu.
Ég er andvígur öllum brtt. landbn. við frv., og þær binda allar hver aðra. Enn fremur er ég andvígur till. hv. 8. landsk. Eftir þeim er hæpið, að frv. nái nokkru sinni tilgangi sínum.