14.05.1941
Efri deild: 60. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)
95. mál, lax og silungsveiði
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :
Það er ekki margt að segja um þetta frv. á þessu stigi. Það hafa ekki komið fram brtt. frá einstökum þdm. En landbn. þótti rétt að auka því ákvæði við, að breyt., sem gerðar hafa verið á laxveiðil. nr. 61 frá 23. júní 1932 og eru orðnar 5 og verða 6 með þessu frv., ef að 1. verður, skuli felldar inn í meginmál l. og þau síðan prentuð í heild. Það getur tafið að leita í stjórnartíðindum á 6 eða 7 stöðum. Hagræðið fyrir allan almenning af þessari smábreyt. er svo mikið og hún svo sjálfsögð, að ekki ætti að þurfa að mæla með henni fleiri orðum.