19.05.1941
Neðri deild: 62. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (1943)
95. mál, lax og silungsveiði
Bjarni Ásgeirsson:
Ég á hér brtt. við þetta mál ásamt hv. þm. Borgf. Mér hefði þótt betra, ef hægt hefði verið að fresta þessu máli, þar sem annar tillögumaðurinn er fjarverandi.— Þessi brtt. er um það, að 2. gr. falli burt. En 2. gr. er um það, að setja skuli, eftir till. veiðimálastjóra og með samþykki veiðimálan., reglur um þau veiðitæki, sem nota má við laxveiði.
Mér finnst, að nokkuð oft hafi verið vegið hér í sama knérunn og oft sé búið að þrengja rétt þeirra manna, sem möguleika hafa til þess að veiða lax í sjó, og gengið svo langt, að þar er jafnvel farið feti lengra en stjskr. leyfir. Mér virðist, að svo megi halda á meðferð þeirra mála, sem í 2. gr. greinir, að hægt sé bókstaflega að eyðileggja alveg laxveiði í sjó, ef hún verður samþ., og taka með annarri hendinni það, sem gefið var með hinni, til þess að leyfa laxveiði í sjó, því það er ekki hægt að koma við nema sérstökum veiðiaðferðum við slíka veiði. Og ef ráðh., eftir tillögu veiðimálastjóra og með samþykki veiðimálan., þóknast að setja þær reglur um þessa veiði, sem banna þá aðferð, sem ein dugir, þá er eyðilagður sá réttur manna til veiði í sjó, sem á þeim jörðum búa, er haft hafa aðstöðu til slíkrar veiði. Mér virðist, að svo sé búið að þrengja kosti þessara manna, að hæpið sé að gefa heimild til þess að taka þessa veiði og hlunnindi alveg af þeim, en það er í lófa lagið, ef þessi breyt. er samþ. Ég legg því á móti því, að þessi heimild verði samþ., og mæli með því, að brtt. mín og hv. þm. Borgf. á þskj. 528 verði samþ. Annars vil ég endurtaka þá ósk mína, að þessu máli verði frestað, þangað til hv. þm. Borgf. getur komið og greitt atkv. með sinni tillögu.