23.05.1941
Neðri deild: 65. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í B-deild Alþingistíðinda. (2011)

77. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Jón Ívarsson:

Mér kemur það kynlega fyrir að heyra hv. þm. Ísaf. segja, að við hv. þm. N.Þ. höfum lagt til, að hundraðsgjaldið yrði 1/8%. Við lögðum til, að það væri ½%. Og miðað við það er það síður en svo til bóta að fá breyt. þá, sem í frv. felst nú, frá því, sem hefði verið, ef brtt. okkar hv. þm. N.-Þ. hefði verið samþ.