20.05.1941
Efri deild: 64. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 840 í B-deild Alþingistíðinda. (2039)
131. mál, þegnskylduvinna
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :
Frv. þetta, sem hér liggur fyrir, er til orðið af því, að á síðasta Alþingi var gerð sú samþykkt að skora á ríkisstj. að undirbúa frv. um þegnskylduvinnu, og var til ætlazt að leggja það síðan undir þjóðaratkvæði. Þó hefur ekki að sinni verið í það ráðizt, heldur fól landbúnaðarráðh. framfærslunefnd ríkisins að gera uppkast að lögum, er gæfu einstökum bæjarfélögum og sjávarþorpum heimild, og hana mjög takmarkaða, til að koma á hjá sér þegnskylduvinnu. Þetta frv. nefndarinnar fékk meðmæli búnaðarþings. Nú hefur landbn. Nd. endurbætt frv. þetta og borið það fram. Hún leggur þar til, að heimilað sé, að þegnskylduvinnan nái til hreppa. Í kaupstöðum ákveður bæjarstjórn um þegnskylduvinnu, en almennur hreppsfundur í sveitum, og þarf 3/5 atkvæða til samþykktar. Skal skyldan aðeins ná til karlmanna á aldrinum 16–25 ára, og má vinnan vara allt að ½ mánuði árlega fyrir einstakling og eigi lengur en samtals 6 vikur á þessu árabili.
Okkur nefndarmönnum þótti ýmislegt geta farið betur í frv. og gerðum við það brtt. Fyrst og fremst er það atriðið, að bæjarstjórnir skuli ekki einar geta ráðið því að koma á þegnskylduvinnu í kaupstöðum, heldur skuli fara þar fram atkvgr. meðal allra þeirra, er kosningarrétt eiga í sveitarmálefnum. Ekki skal samkv. brtt. stofnað til þeirrar atkvgr., nema meiri hl. hreppsn. eða bæjarstjórnar óski eða fram komi bréfleg áskorun frá minnst 1/5 kjósenda innan umdæmisins. Við vildum ekki, að farið yrði að hlaupa út í þetta ófyrirsynju. Ákvæði eru sett um auglýsing funda eða atkvgr. um málið. Oft er ekki hægt að boða til nógu fjölsóttra almennra funda í kaupstöðum, svo að við felldum það ákvæði niður, en í staðinn má haga atkvgr. þannig, að hún fari fram á tilteknum stað og standi yfir svo marga daga sem þurfa þykir, líkt og farið er að við allsherjar atkvgr. í verkamannafél. Dagsbrún og víðar. Ef fullur helmingur atkvæðisbærra manna hefur greitt atkvæði og 3/5 goldið jákvæði, er þegnskylduvinnan samþ., annars ekki. Með því lagi er ekki gengið framhjá vilja almennings.
Þá vildum við kveða skýrt á um, að þóknun til þeirra, sem þegnskylduvinnu inna af hendi, skuli nægja til greiðslu fæðis og dvalarkostnaðar, meðan vinnan stendur.
Við 4. gr. 1. málsgr. vildum við setja það tímatakmark, að þegnskylduvinnunefnd sé skipuð til fjögurra ára í senn. Loks vildum við taka fram, að þá er reglugerð um þegnskylduvinnu kemur fyrir atvmrh. til staðfestingar, skuli hann staðfesta hana þá þegar eða að fengnum þeim breytingum, sem hann telur nauðsynlegar. Brtt. þessar með nál. okkar á þskj. 544 eru ekki stórvægilegar nema hin fyrsta, og sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta. Hv. þdm. munu sjá, hvað í frv. er fólgið, og skal ég ljúka máli mínu.