08.05.1941
Neðri deild: 54. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (2178)

101. mál, byggingar og landnámssjóður

Frsm. (Jón Pálmason) :

Í tilefni af ræðu og till. hæstv. fjmrh. vil ég taka það fram, að landbn. hefur eðlilega ekki athugað þetta mál, og verður að gera það áður en umr. fer fram næst um málið, og þarf ekki heldur að taka neina ákvörðun um það nú, af því að hæstv. ráðh. ætlar að taka brtt. sína aftur til 3. umr.

En í sambandi við ákvarðanirnar um það atriði, þá verður að samræma framlögin til byggingarsjóðanna, byggingarsjóðs sveitanna annars vegar og byggingarsjóða kaupstaðanna hins vegar.