13.05.1941
Neðri deild: 58. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í B-deild Alþingistíðinda. (2185)

101. mál, byggingar og landnámssjóður

Frsm. (Jón Pálmason) :

Það hefur orðið að samkomulagi milli landbn. og hæstv. fjmrh. að fallast á þá lausn, sem felst í brtt. 452, að framlag sé hækkað úr 250 þús. kr. í 340 þús. kr., og að niður séu felld ákvæði 14. gr. l. nr. 58 8. sept. 1931, um einkasölu á tóbaki. Jafnframt verði breyt. á fyrirsögn frv. samkv. þessu. Ég vænti, að hv. d. verði þessu samþykk.