25.04.1941
Efri deild: 44. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (2204)
122. mál, verkamannabústaðir
Páll Zóphóníasson:
Ég skal ekki segja mikið um þetta mál, sem flutt er hér af hv. n. Ég veit ekki, hvers vegna hér er ekki höfð vísitala fyrir hækkun byggingarkostnaðar, sem árlega liggur fyrir. Vísitala kauplagsn. felur alls ekki í sér hækkun byggingarkostnaðar og er því í algerðu ósamræmi við hann. Þegar við í landbn. tókum upp í heimild, að það yrði greidd dýrtíðaruppbót á byggingarstyrk til einstaklinga, er fengu styrk af nýbýlanefnd, miðuðum við við vísitölu byggingarkostnaðar, og eins ætti hér að vera.