12.05.1941
Neðri deild: 57. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 906 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)

146. mál, söngmálastjórar þjóðkirkjunnar

Frsm. (Þorsteinn Briem) :

Þetta frv. er stutt og segir sjálft til sín, og vil ég leyfa mér að vísa til frv. og grg. Menntmn. hefur flutt frv. samkv. ósk biskups, og er ætlunin að bæta úr mjög brýnni þörf í þessum efnum.

Menntmn. væntir þess, að frv. verði vísað til 2. umr.